Skip to Content

Jól & áramót

Jólin

Hátíðarplattar heim eða í vinnuna, jólahlaðborð hvar sem er og jólaseðill á Fröken Selfoss.

Veislur og hátíðarplattarÁ Fröken Selfoss

  • Hátíðarplatta og jólapinna pantar þú á netinu með minnst 48 klukkustunda fyrirvara, sótt eða sent.
  • Fyrir jólahlaðborð og stærri veislur sendir þú okkur fyrirspurn.
  • Fyrir 30 manns eða fleiri á Selfossi eru heimsending, uppsetning og frágangur innifalin.
  • Kokk á staðinn, borðbúnað og starfsfólk útvegum við gegn greiðslu.
  • Barþjónar og starfsfólk í sal fást með og drykkina má gera upp á nokkra vegu.
  • Ofnæmi og sérfæði: við aðlögum réttina ef þið látið okkur vita.
  • Fyrirspurn er ekki bindandi og við svörum innan 48 klukkustunda.
  • Spurningar? Hringdu í 864 3237.
Jólaveisla

Jólaveisla

Hátíðarveislan okkar: jólasmáréttir, tvær steikur og randalína í eftirrétt.

11.599 kr á mann · Lágmark 20 gestir

Jólasnarl · 6 bitar á mann

Jólasnarl · 6 bitar á mann

Léttir jólabitar með fordrykknum eða í aðventuboðið.

4.299 kr á mann · Lágmark 20 gestir

Jólabistró · 10 bitar á mann

Jólabistró · 10 bitar á mann

Nóg í hádegisboð eða léttan kvöldverð.

6.499 kr á mann · Lágmark 20 gestir

Jólalúxus · 12 bitar á mann

Jólalúxus · 12 bitar á mann

Heil máltíð í bitum, með meira úrvali og meiri lúxus.

7.599 kr á mann · Lágmark 20 gestir

Hangikjötsveisla

Hangikjötsveisla

Hangikjöt að hætti ömmu, með heitum uppstúf og kartöflum.

6.499 kr á mann · Lágmark 10 gestir

Kalkúnaveisla

Kalkúnaveisla

Fyllt kalkúnabringa með öllu tilheyrandi, frá þakkargjörð til áramóta.

6.799 kr á mann · Lágmark 10 gestir

Bakkar

Ein tegund á hverjum bakka.

Smáborgarar og bao

Hreindýraborgari með gráðosti · 30 stk

Hreindýraborgari í brioche-brauði með gráðosti og rifsberjasultu. Jólabakki.

23.999 kr á bakka

Viljið þið eitthvað sérsniðið?

Sendið okkur dagsetningu, staðsetningu og fjölda gesta og við gerum tillögu að matseðli og verði.

Á veitingastaðnum

Jólin á Fröken Selfoss

Bröns, jólaseðill og hátíðarkvöld við Brúartorg.

Lúxus jólabröns

Hátíðlegur bröns borinn fram til að deila, um allar helgar á Fröken Selfoss. Fyrir hópa 10+ líka aðra daga, hjá okkur eða í sal.

7.299 kr. á mann

Lágmark 2 manns, tilboð fyrir hópa 15+. Hópar með 8+ fullorðnum: börn 0–4 ára borða frítt, 5–11 ára 50% afsláttur.

  • Hrærð egg, beikon, bakaðar baunir og pylsur
  • Avókadóristað brauð með confit-tómötum og balsamikgljáa
  • Bakaður Bónda-brie með chili-hunangi
  • Lakkrísgrafinn lax og laufabrauð
  • Reyktar rauðbeður með geitaostakremi
  • Brokkolí tempura
  • Vöfflur með hlynsírópi
  • Blandaðir ávextir
  • Skyr með rjóma, aðalbláberjum og sykri
  • Randalína á tvo vegu, brún og hvít, með heitri karamellu, skyrkremi og rifsberjum
  • Crémant, prosecco, mímósur og jólaglögg á tilboðsverði
Bóka borð

Jólaseðill · 10 réttir í 5 umferðum

Tíu jólaréttir í fimm umferðum fyrir allt borðið, bornir fram í hlýlegu umhverfi Fröken Selfoss. Bættu við sérvöldum vínum með hverri umferð.

16.999 kr. á mann

Vínpörun 10.999 kr. á mann. Lágmark 2 manns, eingöngu fyrir allt borðið.

  • Lystauki · Jafningsídýfa með stökku hangikjöti og laufabrauði
  • Súpa · Villibráðarsúpa með timjanrjóma, trönuberjamauki og brauðteningum
  • Forréttir til að deila · Hreindýratartar með trufflu og eggjarauðu, hvítlauksristaður leturhumar, lakkrísgrafinn lax, reyktar rauðbeður og hreindýrapaté
  • Aðalréttur · Lambamjöðm í jurtaraspi og stökk purusteik með portvíns- og bláberja-demi-glace, ostakartöflum og gljáðum gulrótum
  • Eftirréttur · Randalína á tvo vegu með heitri karamellu, skyrkremi og rifsberjum
Bóka borð

Jólastjarnan · 3 réttir

Þriggja rétta jólaseðill með hreindýri, bleikju og lava köku, borinn fram á Fröken Selfoss.

13.999 kr. á mann

Forsmekkur fylgir.

  • Forsmekkur · Jafningsfroða með stökku hangikjöti og laufabrauði
  • Forréttur · Hreindýratartar
  • Aðalréttur · Pönnusteikt bleikja
  • Eftirréttur · Lava kaka með stökkum höfrum og ís
Bóka borð

Jólaljósin · 3 réttir

Þriggja rétta jólaseðill með hörpuskel, purusteik og randalínu, borinn fram á Fröken Selfoss.

13.999 kr. á mann

Forsmekkur fylgir.

  • Forsmekkur · Jafningsfroða með stökku hangikjöti og laufabrauði
  • Forréttur · Hörpuskel ceviche með mangó- og engifervínagrettu og radísum
  • Aðalréttur · Purusteik með demi-gljáa og kartöflugratíni
  • Eftirréttur · Randalína með heitri karamellu og ís
Bóka borð

Jólamatseðill à la carte

Átta nýir hátíðarréttir á matseðli Fröken Selfoss yfir jólin: villibráð, sjávarréttir og vetrarbragð úr íslensku hráefni, með nútímalegri framsetningu. Í boði í hádeginu og á kvöldin.

Verð samkvæmt matseðli

Aðeins yfir jólatímann. Seðillinn tekur breytingum eftir framboði.

Hátíðarkvöld

24. 25. og 31. desember og 1. janúar

Á stórhátíðum bjóðum við eingöngu upp á jólaseðilinn, jólaseðlana tvo með þremur réttum og grænmetisseðilinn, fyrir bókuð borð frá kl. 17:00. Þú bókar borð fyrst og greiðir svo seðlana á netinu innan sólarhrings. Full endurgreiðsla ef afbókað er meira en 48 klst. fyrir bókaðan tíma. Afslættir gilda ekki, aðrir réttir eru ekki í boði og ekki er tekið við gestum án bókunar.

Skráðu ofnæmi og sérþarfir í athugasemd við bókunina eða sendu póst á info@frokenselfoss.is og við gerum okkar besta til að koma til móts við þig.

Bóka borðSeðlar og greiðsla

Grænmetisseðill · 4 réttir · 12.899 kr. á mann

Má panta fyrir einn og einn.

  • Villisveppasúpa með koníaki
  • Reyktar rauðbeður, geitaostur, heslihnetuvínagretta og poppað bygg
  • Heimagert vegan Wellington, ristað grænmeti, anísleginn fennill og rjómakennd rósmarín- og sesamsósa
  • Veldu: randalína á tvo vegu með ís eða pistasíu-lava kaka með ís

Börn

Þetta eru notaleg hátíðarkvöld og við biðjum alla gesti að hjálpa okkur að halda ró í salnum. Með bókun samþykkir þú að gestum sem valda ónæði getur verið vísað út án endurgreiðslu.

  • 0–5 ára: frítt, eitt barn á hvern fullorðinn; hvert barn umfram það 5.899 kr.
  • 6–12 ára: 5.899 kr. á barn
  • Börn velja af seðlinum, kjúklingastrimla eða litlar pítsur