Í einkaveislum þar sem við sjáum um mat og bar eru nokkrar leiðir til að ákveða hver greiðir fyrir drykkina. Þið veljið þá leið sem hentar.
- Gestir greiða sjálfir. Við komum með afgreiðslustöð og rukkum eftir pöntunum, svo framarlega sem fyrirfram ákveðnum sölubotni er náð til að dekka þjónustuna.
- Fordrykkur eða drykkjarmiðar. Þið bjóðið upp á fordrykk eða úthlutið forkeyptum miðum og við rukkum fyrir rest.
- Frítt til ákveðins tíma. Þið bjóðið upp á drykki fram að ákveðnum tíma og eftir það greiða gestir sjálfir.
- Frítt upp að upphæð. Þið bjóðið upp á drykki upp að fyrirfram ákveðnu söluþaki, til dæmis 150.000 kr., og eftir það greiða gestir sjálfir.
- Opinn bar. Þið bjóðið öllum upp á drykki allt kvöldið.
Drykkjapakkar og vínpörun eru sniðin að hverjum viðburði. Segið okkur hvað þið hafið í huga í fyrirspurninni.