Þorrablót
Þorrinn
Þorrablótin hjá Fröken Selfoss hafa notið mikilla vinsælda. Hjá okkur færðu take away þorra trog tilbúið beint á borðið heima eða á vinnustaðinn, vegleg þorra hlaðborð með eða án steikarkhlaðborði í sal hjá okkur eða annarstaðar.
Trogin geta verið afhent í einnota pappa öskjum eða á alvöru þorra trogi.
Við komum með glæsileg þorrablót og kokka hvert sem er á stór suðurlandssvæðið, stillum því upp, skreytum og sjáum um það frá A-Ö með borðbúnaði og tökum svo allt skítugt til baka.
Matseðlar okkar eru hannaðir með hópveislur í huga – vel samsettir, árstíðabundnir og auðveldir í framreiðslu.
Við bjóðum upp á:
Tilbúna matseðla sem henta flestum fyrirtækjaviðburðum
Sveigjanleika varðandi ofnæmi og sérfæði
Ríkulegan mat byggðan á íslensku hráefni
Fyrir þá sem vilja lyfta upplifuninni enn hærra bjóðum við einnig upp á:
Vínpörun
Móttöku með einkenniskokteilum
Eftirréttaborð eða miðnætur snarl
Allt er verðlagt á skýran og gagnsæjan hátt.
Gott Þorrablót snýst ekki bara um matinn.
Við bjóðum upp á:
Fulla barþjónustu
Reynslumikla barþjóna
Vel valin vín og bjóra
Sérhannaða kokteila fyrir viðburði
Drykkjapakkar og pörun eru sniðin að viðburðinum – hvort sem hann er formlegur eða afslappaður.
- Við getum komið með afgreiðslustöð og rukkað alla eftir pöntunum, en það er alltaf háð því að fyrirfram ákveðnum "Sölu botni" sé náð til að dekka þjónustuna.
- Þið getið boðið uppá fordrykk eða úthlutað forkeyptum drykkjar miðum, og við rukkum fyrir rest.
- Þið getið boðið uppá vín eða x margar vínflöskur yfir borðhaldið og við rukkum fyrir allt annað.
- Þið getið boðið uppá drykki fram að ákveðnum tíma, og við byrjum svo að rukka eftir það.
- Þið getið boðið uppá drykki uppað fyrirfram ákveðnu "Sölu þaki" til dæmis 150.000kr, og eftir að þeirri sölu hefur verið náð í kerfinu okkar, þá byrjum við að rukka gestina eftir pöntunum.
- Eða uppáhaldið okkar, þið getið bara boðið öllum uppá drykki fram á rauða nótt.
Sendið okkur fyrirspurn með upplýsingum um viðburðinn
Við sendum tillögur að matseðlum og tilboði
Bókun staðfest og smáatriði kláruð
Við sjáum um framkvæmdina – þið njótið kvöldsins
Ferlið er einfalt, skilvirkt og áreiðanlegt.
Skoðaðu veislur og verð
Hangikjötsveisla að hætti ömmu. Þú getur náð í hana til okkar með heitum uppstúf og kartöflum á Fröken Selfoss eða fengið okkur til að koma með hana og stilla henni upp gegn vægu gjaldi á Selfossi. Sendingar kostnaður, uppstilling og endurheimtun búnaðar er innifalin fyrir veislur 30+ á Selfossi
- Verð: 5.990kr á mann
- Lágmark 15 manns
Kalt
- Hangikjöt
- Laufabrauð og smjör
- Heimagert rauðkál
- Grænar baunir
Heitt
- Kartöflur í uppstúf
Eftirréttur Bættu við einum eftirfarandi eftirréttum fyrir 800kr á mann
- Ris ala mand með kirsuberja sósu
- Brownie með hvítsúkkulaði skyrganache
- Pavlova
Hægt að fá afhent í einnota pappa öskjum og heitan mat í álformum tilbúið á veisluborðið eða á hefðbundnum þorratrogum og í hitaborði sem hægt er að ná í hjá okkur á Fröken Selfoss. Einnig hægt að fá heimsent með uppstillingu og umsjá gegn gjaldi
- 15 - 30 manns: verð per mann - 7.900,-
- 31 - 50 manns: verð per mann - 7.700,-
- + 50 manns : verð per mann - 7.500 ,-
Súrmeti
- Hrútspungar
- Súr sviðasulta
- Lundabaggar
- Lifrapylsa
Nýmeti
- Hangikjöt úr læri
- Harðfiskur & smjör
- Hákarl
- Síld - tvær tegundir
- Flatbrauð - Rúgbrauð - Smjör
- Ný sviðasulta
- Sviðakjammar
- Köld rófustappa - Ítalskt salat
Heitir réttir
- Soðið saltkjöt
- Kartöflur og uppstúfur
Stóra þorrablótið er eingöngu framreitt í sal, hvort sem salurinn sé á okkar vegum eða annarstaðar. Við komum með allan búnað og mat, stillum upp glæsilegu hlaðborði á fallegum borðbúnaði, skreytum, skerum, vöskum upp og göngum frá og sjáum um allt umstang á því sem við kemur eldhúsinu.
Í sal hjá okkur þar sem við seljum áfengar veigar er alltaf bar og þjónusta innifalin, við getum einnig útvegað það í öðrum sölum sé þess óskað.
Verð: Við gerum tilboð í hverja veislu fyrir sig, sentu okkur fyrirspurn!
Lágmark 45 manns
Sendingakostnaður, allur búnaður og uppvask á borðbúnaði er innifalinn í verði.
Súrmeti
- Súrir hrútspungar
- Súr sviðasulta
- Súrir lundabaggar
- Súr lifrapylsa
- Súr blóðmör
- Súr grísasulta
Kalt hlaðborð
- Taðreykt hangikjöt
- Hákarl
- Harðfiskur
- Sviðasulta
- Grísasulta
- Sviða kjammar
- 3 tegundir síld
- Baunasalat
- Rófustappa
- Flatbrauð
- Rúgbrauð
- Smjör
Heitt hlaðborð
- Grillað lambalæri, bakað rótargrænmeti og rauðvínssósa
- Saltkjöt
- Uppstúfur og kartöflur
- Kartöflumús
- Sætkartöflusalat, döðlur og hnetur
- Perlubyggsalat
- Brokkolí og trönuberja salat
Bættu við Indverskum grænmetispottrétt fyrir 190kr á mann
Verð: 1.550 ISK per person
Lágmark 10 manns
Magn á mann:
- 1x Brownie bitar með skyr ganache
- 2x Makkarónur
- 2x Groovís donuts
- 1x Súkkulaði húðuð jarðaber
Panta veislu
- Fylltu út formið með grunn upplýsingum svo við getum leyst úr þínu verkefni hratt og örugglega.
- Við reynum að svara öllum fyrirspurnum innan 48 tíma.
- Ef málið er áreiðandi heyrðu þá í okkur í síma 451-3320 til að vekja athylgi á því.
- Fyrirspurnir eru ekki bindandi.