Skip to Content

Hátíðarkvöld á Fröken Selfoss

24., 25. og 31. desember og 1. janúar

Þessi kvöld bjóðum við aðeins upp á jólaseðlana, fyrir bókuð borð frá kl. 17:00. Seðlarnir eru greiddir fyrir fram.

Leið 1 · Kaupa seðlana hér (einfaldast)

Veldu seðil fyrir hvern gest, kvöld og komutíma milli kl. 17:00 og 20:30 og greiddu. Við bókum borðið fyrir þig og staðfestum í tölvupósti. Borðið er þitt í 2,5 klst.

Velja seðla

Leið 2 · Bóka borð fyrst

Bókaðu borð í bókunarkerfinu og greiddu svo seðlana hér innan 24 klst. með sama nafni og netfangi. Annars losnar borðið.

Bóka borð

Afbókun

Full endurgreiðsla ef afbókað er meira en 48 klst. fyrir bókaðan tíma. Innan 48 klst. er ekki endurgreitt.

Jólaseðill · hátíðarkvöld

16.999 kr. á mann

Tíu réttir í fimm umferðum fyrir allt borðið: jafningsídýfa með stökku hangikjöti og laufabrauði; villibráðarsúpa; hreindýra tartare, hvítlauksristaður leturhumar, lakkrísgrafinn lax, reyktar rauðbeður og hreindýrapaté til að deila; lambamjöðm og purusteik með portvíns-bláberja demi-glace; randalína á tvo vegu. Fyrir allt borðið, lágmark 2. Grænmetisætur við borðið geta fengið grænmetisseðilinn í staðinn.

Vínpörun: 10.999 kr. á mann. Þú getur bætt henni við þegar þú velur seðilinn.

Jólastjarnan · 3 réttir · hátíðarkvöld

13.999 kr. á mann

Jafningsfroða með stökku hangikjöti og laufabrauði; hreindýra tartare; pönnusteikt bleikja; lava kaka með stökkum höfrum og ís. Má blanda við Jólaljósin og grænmetisseðilinn við sama borð.

Vínpörun: 7.999 kr. á mann. Þú getur bætt henni við þegar þú velur seðilinn.

Jólaljósin · 3 réttir · hátíðarkvöld

13.999 kr. á mann

Jafningsfroða með stökku hangikjöti og laufabrauði; hörpuskel ceviche með mangó- og engifervínagrettu; purusteik með demi-glace og kartöflugratíni; randalína með heitri karamellu og ís. Má blanda við Jólastjörnuna og grænmetisseðilinn við sama borð.

Vínpörun: 7.999 kr. á mann. Þú getur bætt henni við þegar þú velur seðilinn.

Grænmetisseðill · 4 réttir · hátíðarkvöld

12.899 kr. á mann

Villisveppasúpa með koníaki; reyktar rauðbeður, geitaostur, heslihnetuvínagretta og poppað bygg; heimagert vegan Wellington, ristað grænmeti, anísleginn fennill og rjómakennd rósmarín- og sesamsósa; randalína á tvo vegu eða pistasíu-lava kaka, báðar með ís. Má panta fyrir einn og einn, líka við borð sem fær jólaseðilinn.

Vínpörun: 7.999 kr. á mann. Þú getur bætt henni við þegar þú velur seðilinn.

Börn 6–12 ára · hátíðarkvöld

5.899 kr. á mann

Börn velja af seðlinum: kjúklingastrimla eða litlar pítsur. 0–5 ára borða frítt, eitt barn á hvern fullorðinn; hvert barn umfram það 5.899 kr.

Gott að vita

Aðrir réttir eru ekki í boði þessi kvöld, afslættir gilda ekki og ekki er tekið við gestum án bókunar. Jólaseðillinn er fyrir allt borðið, lágmark 2; grænmetisætur við borðið geta fengið grænmetisseðilinn í staðinn. Jólastjörnuna, Jólaljósin og grænmetisseðilinn má blanda við sama borð.

Börn, ofnæmi og sérþarfir

0–5 ára borða frítt, eitt barn á hvern fullorðinn. Þetta eru notaleg hátíðarkvöld og við biðjum alla gesti að hjálpa okkur að halda ró í salnum. Skráðu ofnæmi í athugasemd við bókunina eða sendu póst á info@frokenselfoss.is.