Þegar veisla er pöntuð er gott að vita hvað „einingar“ og „tegundir“ þýða, því það segir til um hversu mikill matur kemur á borðið.
Einingar og tegundir
Einingar segja til um lágmarksfjölda smárétta sem eru framleiddir fyrir hvern gest.
Tegundir segja til um hversu margir ólíkir réttir eru í veislunni. Mini hamborgari er ein tegund og grillað ribeye-spjót önnur.
Dæmi: „8 tegundir, 10 einingar á mann“ þýðir átta ólíkir réttir og að hver gestur fær að lágmarki tíu bita.
Hversu margar einingar á mann?
- 6 einingar á mann: stutt móttaka, forréttur eða utan matmálstíma, um hálf máltíð.
- 8–10 einingar á mann: fermingar, hádegisverður eða léttur kvöldverður.
- 11–15 einingar á mann: full kvöldmáltíð, smærri bitar og meira úrval.
Pakkar og bakkar
Pakkarnir okkar eru frá 15 gestum og flestir bakkar af einni tegund eru 30 bitar. Pantað er á vefnum með minnst 48 klukkustunda fyrirvara, sótt eða sent alla daga kl. 11–20.