10 réttir > 12 bitar á mann
Litlar einingar, mikið úrval. Þessi veisla er heppileg í glæsilegan kvöldverð í "gala"legri umgjörð, svo sem stórafmæli, brúðkaup og árshátíðum.
Grafin gæs á stökku brauði
Mosa og ling grafin gæs, bláberja vínagretta, piparrót, sýrður rauðlaukur og ristaðar kasjúhnetur borið fram á stökku brauði.
Lambaspjót
Grillað lamba fillet, gljáð og velt upp úr kryddjurtarasp.
Carpaccio
Nautaþynnur á stökku brauði með túnsúru pestói og rifnum Grettir osti.
Ceviche
Perúískur réttur gerður úr sítrusmarineruðu sjávarmeti. Við notum þorsk, bleikju og rækju, borið fram á stökku flatbrauði og eldpipars mæjó.
Hægelduð bleikja
Hálf-grafin og hægelduð bleikja í austurlenskum kryddhjúp, borin fram með kryddaðri engiferssósu á stökku flatbrauði
Saltfiskur & ólífu pestó
Saltfiskur, sætkartöflumauk og ólífupestó borið fram í brauðbolla
Beikonvafðar döðlur
Beikonvafðar döðlur á pinna.
Parma skinka og kantilópa
Kantilópa vafin inn í parmaskinku
Andarsalat á laufi
Rifin önd, kasjúhnetur, sesam dressing og sýrð epli borin fram á romain salatblaði
Brownie
Þétt súkkulaðikaka með skyr ganache og jarðaberi.