Pinnaveislur fyrir öll tilefni
Pinnaveislurnar okkar
Pinna/smárétta veislur henta við öll tilefni hvort sem um er að ræða standadi eða sitjandi veislur, lítil afmæli í heimahúsi, á fundinn, í fyrirtækjapartý, brúðkaup, útskriftir, eða fermingar.
Allt að 300 eininga veislu er hægt að fá afhenta með 48 tíma fyrirvara í gegnum vefverslun. Allt umfram það þarf að semja um afhendingartíma.
Útskýring á umfangi veislu:
- "Einingar" segja til um lágmark heildar fjölda af smáréttum sem eru framleiddir fyrir hvern einstakling.
- "Tegund" segir til um hversu margir réttir eru í veislunni sem valið er. T.d. mini hamborgari er ein tegund og grillað ribeye spjót er önnur tegund.
Dæmi: "Bístró smáréttir" Samsetta veislan okkar eru. "8 tegundir > 10 einingar á mann" þá eru 8 mismunandi réttir en hver einstaklingur fær að lágmarki 10 einingar.
Ef valið er smárétti af vefsíðu þá eru einingar alltaf sambærilega stórar, ef þær eru í tilbúnum matseðlum eru stærðir breytilegar og almennt hannaðar sem heil máltíð nema annað sé sérstaklega tekið fram.
6 einingar á mann
Passlegt fyrir stuttar móttökur, forrétt eða utan venjulegs matmálstíma og jafngildir ca hálfri máltíð
8-10 einingar á mann
Heppilegt fyrir fermingar, hádegisverð eða léttan kvöldverð
11-15 einingar á mann
Full kvöldverðar máltíð. Frábært í fínni veislur, smærri einingar, meira úrval, meiri lúxus!
Það eru margar ástæður til að velja pinnaveislur.
- Lágmarks borðbúnaður, jafnvel engin.
- Engin falin gjöld sem kunna að myndast við aðra tegundir af veislum eins og uppvask, þjónusta, leiga á borðbúnaði og annarskonar fylgifiskar.
- Tilvalið að panta litla veislu og nota sem forrétt heima fyrir eða skeyta við stærri veislur hjá okkur sem forrétt með fordrykk fyrir blandaða upplifun.
- Hægt að fá afhent á fallegum einnota veislubökkum.
- Lágmarks umstang. Pantaðu, náðu í hana á þeim tíma sem við ákveðum saman, smelltu henni á borðið og byrjaðu að borða.
- Við þurfum aðeins 48 tíma fyrirvara til að afgreiða veislur allt að 30 manns.
Skoðaðu veislur og verð
Mest selda veislan okkar! Þessi veisla er heppileg í hádegismat eða léttari kvöldverð í bístró stíl. Á vel við fermingar, fundi, afmæli og aðra reglulega viðburði.
- 8 Tegundir
- 10 Einingar á mann
- Lágmark 10 manns
- Verð: 5.990kr á mann
Djúpsteikt rækja
Djúpsteikt rækja með japönsku sesam mæjó, stökkum hvítlauk og jurtum.
Kjúklingapsjót
Hægelduð kjúklingalæri í hnetu hjúp
Mini hamborgari
Mini hamborgari í sesam brauði, klettakáli, aioli og rauðlaukssultu.
Rifinn grís í steam bun
Rifinn grís í korean BBQ sósu, pikklað fennel og wasabi sesam.
Kjúklinga Takkó
Stökkur kjúklingur, ponzu majó og hrásalat í heimagerðri takkó skel.
Hægelduð bleikja
Hálfgrafin og hægelduð bleikja á stökku flatbrauði og hundsúrupestó
Andarsalat
Rifin önd, kasjúhnetur, sesam dressing og sýrð epli borin fram á romain salatblaði
Brownie
Þétt súkkulaði kaka með skyr ganache og jarðaberi.
Allur matur kemur á pinna svo þessi virkar vel sem fingrafæði í standandi veislur án borðbúnaðs.
- 8 Tegundir
- 12 Einingar á mann
- Lágmark 10 manns
- Verð: 6.990kr á mann
Djúpsteikt rækja
Djúpsteikt rækja með japönsku sesam mæjó, stökkum hvítlauk og jurtum.
Kjúklingapsjót
Hægelduð kjúklingalæri í hnetu hjúp
Parma skinka og kantilópa
Kantilópa vafin inn í parmaskinku
Mini hamborgari
Mini hamborgari í sesam brauði, klettakáli, aioli og rauðlaukssultu.
Ceviche spjót
Sítrus marineraður sjávarréttur, bleikja, þorskur og rækja með eldpiparsmæjó og jurtum
Hægelduð bleikja á spjóti
Hálfgrafin og hægelduð bleikja með stökku flatbrauðs krumble og hundsúrupestó
Andarsalat
Rifin önd, kasjúhnetur, sesam dressing og sýrð epli borin fram á romain salatblaði
Brownie
Þétt súkkulaði kaka með skyr ganache og jarðaberi.
Þessi veisla er ætluð sem forréttur til að nasla á með fordrykk eða utan hefðbundins matartíma. Þessi veisla er öll borin fram á pinnum og er því henntugt fingrafæði.
- 4 Tegundir
- 6 Einingar á mann
- Lágmark 10 manns
- Verð: 3.690kr á mann
Beikonvafðar döðlur
Beikonvafðar döðlur á pinna.
Carpacchio
Carpacchio með túnsúru pestói á stökku flatbrauði.
Mini borgari
Grillaðir mini borgarar, aioli og picklaður rauðlaukur í kartöflu brauði.
Önd á laufi
Rifin önd, kasjúhnetur, sesam dressing og sýrð epli borin fram á salatblaði.
Þessi veisla er heppileg fyrir erfidrykkjur og kaffiboð og virkar vel í standandi borðhaldi þar sem ekki þarf neinn sérstakan borðbúnað
- 6 Tegundir
- 10 Einingar á mann
- Lágmark 25 manns
- Verð: 4.490 kr á mann
Við bjóðum uppá úrval af mismunandi snittum, ef þú hefur aðrar tegundir í huga, láttu okkur vita.
- Roastbeef snitta, remúlaði, súrar gúrkur og steiktur laukur
- Rækju snitta, egg, sítrónu mæjó
- Skinkusnitta, ananas
- Graflax snitta, eggjahræra, aspas, dill
- Flatkaka með hangikjöti og baunasalat
- Kleinur
- Brownie
Panta veislu
- Fylltu út formið með grunn upplýsingum svo við getum leyst úr þínu verkefni hratt og örugglega.
- Við reynum að svara öllum fyrirspurnum innan 48 tíma.
- Ef málið er áreiðandi heyrðu þá í okkur í síma 451-3320 til að vekja athylgi á því.
- Fyrirspurnir eru ekki bindandi.