Árshátíðir og Fyrirtækjaveislur
Veisluþjónusta frá Fröken Selfoss
Að skipuleggja árshátíð eða fyrirtækjaviðburð á að vera ánægjulegt ferli – ekki streituvaldandi verkefni.
Hjá Fröken Selfoss hjálpum við fyrirtækjum að halda vel heppnaðar veislur með framúrskarandi mat, faglegri þjónustu og hnökralausri framkvæmd, hvort sem um er að ræða litla kvöldverði eða stóra árshátíð.
Við sjáum um skipulagið og framkvæmdina – svo þú getir notið kvöldsins með starfsfólki og samstarfsfólki.
Við komum þangað sem þér hentar
Við veitum veisluþjónustu á fjölbreyttum stöðum, meðal annars:
Á vinnustöðum fyrirtækja
Í veislusölum og einkarýmum
Hjá samstarfsaðilum okkar á Suðurlandi
Úti í náttúrunni, þegar aðstæður leyfa
Við getum einnig aðstoðað með uppsetningu, skipulag flæðis og samhæfingu við staðarhaldara.
Frá litlum teymum til stórra árshátíða
Við tökum að okkur viðburði af öllum stærðum:
Smáa stjórnendakvöldverði í einka kokka þjónustu
Miðlungsstórar fyrirtækjaveislur
Stórar árshátíðir og fyrirtækjaviðburði
Við erum vön að skala þjónustu án þess að fórna gæðum eða yfirsýn
Útskýring á umfangi veislu:
- "Einingar" segja til um lágmark heildar fjölda af smáréttum sem eru framleiddir fyrir hvern einstakling.
- "Tegund" segir til um hversu margir réttir eru í veislunni sem valið er. T.d. mini hamborgari er ein tegund og grillað ribeye spjót er önnur tegund.
Dæmi: "Bístró smáréttir" Samsetta veislan okkar eru. "8 tegundir > 10 einingar á mann" þá eru 8 mismunandi réttir en hver einstaklingur fær að lágmarki 10 einingar.
Engar tvær árshátíðir eru eins. Við tökum reglulega að okkur:
Sætaða kvöldverði
Tveggja til fjögurra rétta matseðla, tilvalið fyrir formlegar árshátíðir og hátíðarkvöld.
Mingl og félagslega viðburði
Smárétti, deili-menu eða stöðvar sem henta vel þegar gestir eru á hreyfingu.
Hlaðborð
Afslappað og sveigjanlegt form fyrir stærri hópa.
Kokteilkvöld og móttökur
Frábært fyrir styttri viðburði, kynningar eða óformlegar samkomur.
Við aðstoðum við að velja það form sem hentar best hópnum, staðsetningu og tímasetningu.
Matseðlar okkar eru hannaðir með hópveislur í huga – vel samsettir, árstíðabundnir og auðveldir í framreiðslu.
Við bjóðum upp á:
Tilbúna matseðla sem henta flestum fyrirtækjaviðburðum
Sveigjanleika varðandi ofnæmi og sérfæði
Ríkulegan mat byggðan á íslensku hráefni
Fyrir þá sem vilja lyfta upplifuninni enn hærra bjóðum við einnig upp á:
Vínpörun
Móttöku með einkenniskokteilum
Eftirréttaborð eða miðnætur snarl
Allt er verðlagt á skýran og gagnsæjan hátt.
Góð árshátíð snýst ekki bara um matinn.
Við bjóðum upp á:
Fulla barþjónustu
Reynslumikla barþjóna
Vel valin vín og bjóra
Sérhannaða kokteila fyrir viðburði
Drykkjapakkar og pörun eru sniðin að viðburðinum – hvort sem hann er formlegur eða afslappaður.
- Við getum komið með afgreiðslustöð og rukkað alla eftir pöntunum, en það er alltaf háð því að fyrirfram ákveðnum "Sölu botni" sé náð til að dekka þjónustuna.
- Þið getið boðið uppá fordrykk eða úthlutað forkeyptum drykkjar miðum, og við rukkum fyrir rest.
- Þið getið boðið uppá vín eða x margar vínflöskur yfir borðhaldið og við rukkum fyrir allt annað.
- Þið getið boðið uppá drykki fram að ákveðnum tíma, og við byrjum svo að rukka eftir það.
- Þið getið boðið uppá drykki uppað fyrirfram ákveðnu "Sölu þaki" til dæmis 150.000kr, og eftir að þeirri sölu hefur verið náð í kerfinu okkar, þá byrjum við að rukka gestina eftir pöntunum.
- Eða uppáhaldið okkar, þið getið bara boðið öllum uppá drykki fram á rauða nótt.
Sendið okkur fyrirspurn með upplýsingum um viðburðinn
Við sendum tillögur að matseðlum og tilboði
Bókun staðfest og smáatriði kláruð
Við sjáum um framkvæmdina – þið njótið kvöldsins
Ferlið er einfalt, skilvirkt og áreiðanlegt.
Traustur samstarfsaðili fyrir fyrirtæki
Fröken Selfoss hefur á skömmum tíma orðið traustur valkostur fyrir fyrirtæki á Suðurlandi þegar kemur að veitingum og viðburðum. Við erum þekkt fyrir árstíðabundna íslenska matargerð, hlýlegt en fágað umhverfi og faglega þjónustu – og sömu gæði fylgja okkur út í veislur og fyrirtækjaviðburði.
Okkar nálgun er einföld:
Skýr samskipti
Vel útfærðir matseðlar
Áreiðanleg framkvæmd
Rólegt og reynslumikið teymi
Samvinna með öðrum fagmönnum
Frá fyrstu fyrirspurn til síðasta disks – allt er unnið af natni og fagmennsku.
Skoðaðu veislur og verð
Hægt að fá take away í einnota pappa öskjum og álformum heitt og tilbúið á veisluborðið eða kalt og tilbúið til endurhitunar eftir þinni hentisemi, leiðbeiningar um endurhitun fylgir – Við komum, stillum upp og gerum allt klárt á alvöru veislubúnað fyrir veislur 30+ (fullorðnir).
- Verð: 7.990kr á mann
- Lágmark:
- 15 manns - take away
- 30 manns - með umsjá
Heitt
- Hægeldað og kryddlegið lambalæri
- Hvítlauks og timijan ristaðar kartöflur
- Bakað rótargrænmeti
- Bernes
- Portvínsbætt villisveppa sósa
Kalt meðlæti
- Sætkartöflusalat með döðlum og heslihnetum
- Perlubyggsalat
- Brokkolí og trönuberja salat
- Blaðsalat og dressingar
Bættu við smáréttum í forrétt til að taka þessa veislu uppá æðra stig.
Bættu við einum eftirfarandi eftirréttum fyrir 1.000kr á mann
- Rabbabara og epla crumble kaka með rjóma
- Brownie með hvítsúkkulaði skyrganache
Hægt að fá take away í einnota pappa öskjum og álformum heitt og tilbúið á veisluborðið eða kalt og tilbúið til endurhitunar eftir þinni hentisemi, leiðbeiningar um endurhitun fylgir – Við komum, stillum upp og gerum allt klárt á alvöru veislubúnað fyrir veislur 30+ (fullorðnir).
- Verð: 8.990kr á mann
- Lágmark:
- 15 manns - take away
- 30 manns - með umsjá
Forréttahlaðborð
- Krómhjartar carpacchio með túnsúru pestói, grettir ost og blönduðum hnetum
- Heitreykt andarbringa, pikklaður rauðlaukur, sesam vínagretta og stökkir jarðskokkar
- Graflax með anisbættri gravlax sósu
- Ceviche - sítrus marinerað sjávarfang borið fram með elpipars kremi
- Caprese - Ferskir og sólþurrkaðir tómatar, mozarella, balsam gljái, basil og appelsínur
Aðalréttur
- Hægeldað og kryddlegið lambalæri
- Fyllt kalkúna bringa
- Hvítlauks og timijan ristaðar kartöflur
- Bakað rótargrænmeti
- Bernes
- Portvínsbætt villisveppa sósa
Kalt meðlæti
- Sætkartöflusalat með döðlum og heslihnetum
- Perlubyggsalat
- Brokkolí og trönuberja salat
- Blaðsalat og dressingar
Eftirréttur
Bættu við einum eftirfarandi eftirréttum fyrir 1.000kr á mann
- Rabbabara og epla crumble kaka með rjóma
- Brownie með hvítsúkkulaði skyrganache
Þessi veisla er toppurinn af tilveruni. Hún er hönnuð fyrir brúðkaup, árshátíðir og aðra stóra og mikilvæga viðburði sem gleymast seint.
Við komum, stillum upp, skreytum, skerum og gerum allt klárt á alvöru veislubúnað. Eftir veisluna þrífum við og göngum frá öllu sem við kemur eldhúsinu.
- Verð: 10.990kr á mann
- Lágmark: 50 manns
Forréttahlaðborð
- Koníaksbætt og rjómalöguð villisveppasúpa, brauð og meðlæti
- Krómhjartar carpacchio með túnsúru pestói, grettir ost og blönduðum hnetum
- Heitreykt andarbringa, pikklaður rauðlaukur, sesam vínagretta og stökkir jarðskokkar
- Graflax með anisbættri gravlax sósu
- Ceviche - sítrus marinerað sjávarfang borið fram með elpipars kremi
- Caprese - Ferskir og sólþurrkaðir tómatar, mozarella, balsam gljái, basil og appelsínur
- Osta og kjöt platti - Úrval af sælkera ostum, hráskinku, kryddpylsum, sultum og vínber
Aðalréttur
- Hægeldað og kryddlegið lambalæri
- Fyllt kalkúna bringa
- Hvítlauks og timijan ristaðar kartöflur
- Bakað rótargrænmeti
- Kartöflu gratín
- Bernes
- Portvínsbætt villisveppa sósa
Grilluð blómkáls, með túnsúru pestói fylgir fyrir grænmetisætur sé þess óskað
Kalt meðlæti
- Sætkartöflusalat með döðlum og heslihnetum
- Perlubyggsalat
- Brokkolí og trönuberja salat
- Rauðbeður, gráðostur og epli
- Kryddað mangó og melónu salat
- Blaðsalat og dressingar
Eftirréttur
- Rabbabara og epla crumble kaka með rjóma
- Brownie með hvítsúkkulaði skyrganache
- Pavlova með vanillurjóma, berjum, ávöxtum og dökku súkkulaði
Veldu 1 forrétt, 1 aðalrétt og 1 desert fyrir allan hópinn. Við tökum að sjálfsögðu tillit til ofnæma og annara sérþarfa.
- Verð: 9.990kr á mann
- Lágmark: 30 manns
Forréttur
- Ceviche – sítrus marineraður þorskur og kokteilrækjur, elpipars krem og stökkt flatbrauði.
- Grafin gæsabringa – aðalbláber, bláberja vínargretta, piparrótar krem, sýrður rauðlaukur, hnetur og jurtir
- Brokkolí tempura – Sesam vínagretta, wasabi sesam og jurtir
- Krómhjartar carpaccio
- Hvítlauks ristaðir humarhalar með ostinum Grettir og íslenskar jurtir (+1.000kr)
Aðalréttur
- Pönnusteikt bleikja með ristuðu grænmeti, capers smjöri og anis pikklaðri fenniku
- Grilluð lambamjöðm (Sir loin), ofnbakað grænmeti og kartöflu gratín, pikklaður rauðlaukur og brún sósa. (+1.000kr)
- Brasseruð Kjúklingalæri frá Reykjagarði, borin fram með sítrónu timijan sósu, kartöflum, bökuðu grænmeti og hægelduðum tómötum.
- Vegan wellington, villisveppa sósa, ristað grænmeti og anis pikkluð fennika.
Eftirréttur
- Súkkulaði kaka, skyr krem, púðursykurs karamella og aðalbláber úr héraði.
- Rabbabara & eplabaka borin fram með ís, trölla hafra krumble og berjum
Þetta þarf ekkert alltaf að vera rosa flókið! Einfalt virkar yfirleitt best á grillið og við getum í raun sett hvað sem er á stóra grillið okkar og ferðast með það hvert sem er. Hér eru tillögur af því sem við höfum verið að gera hingað til og öllum fyrirspurnum tekið fagnandi.
- Lágmark 50 manns
Einföld hamborgara veisla
Borið fram á einnota pappa bökkum fyrir hvern gest.
Verð: 2.990kr á mann
- Ostborgarar og beikon borgarar - 140gr nauta borgarar með 20% fitu, mjúkt kartöflubrauð, salat, buff tómatur og sósa.
- Beyond burger (ef þú vilt)
- Grillað smælki
- Aioli
Grillspjót
Borið fram á einnota pappa bökkum fyrir hvern gest með kartöflu salati.
- Verð: 5 .990kr á mann
Veldu 4 tegundir.
- Trufflumarinerað nautaspjót og bernes (+400kr)
- Estragon og hvítlauks marineruð lamba mjöðm á spjóti með kaldri piparsósu
- Kryddjurta marinerað kjúklingaspjót
- Hvítlauks marinerað risarækju spjót
- Grænmetis spjót penslað með hvítlaukssmjöri (kúrbítur, paprika, sveppir og paprika. (-200kr)
Pulsu partý
Borið fram í pulsu bréfi
Verð: 1 .490kr á mann
- SS pylsur
- kartöflubrauð
- Allt helsta pulsu meðlæti
- kartöflusalat
Við getum ferðast með grillið okkar hvert sem er. Þessi veisla er einstaklega heppileg fyrir lúxus ferðaþjónustur sem vilja taka sína skoðunaferð uppá næsta plan eða fyrir úti brúðkaup.
- Verð: 8.990kr á mann
- Lágmark 50 manns (hægt að gera fyrir færri, en þarf að semja um verð)
Forréttur - Ekki innifalið í verði
Hægt að skeita pinnum eða smáréttum við þessa veislu, leifðu okkur að gera tilboð!
Aðalréttur - veldu tvennt
- Kryddlegið lambalæri bernes
- Hægelduð kálfa ribeye steik með bernes
- Rósmarín marineruð kalkúna bringa með portvínsbættri villisveppa sósu
- Kryddjurta marineruð kjúklingalæri með portvínsbættri villisveppa sósu
Grilluð blómkáls, með túnsúru pestói fylgir fyrir grænmetisætur sé þess óskað
Meðlæti
- Sætkartöflusalat með döðlum og heslihnetum.
- Kartöflu salat með vorlauk, súrum gúrkum og beikoni
- Perlubygg salat, jómfrúar repjuolía, grillaðari papriku, jurtum og fennel
- Brokkolí og trönuberja salat
- Laufsalat
Eftirréttur
Bragðmikil brownie, skyr ganache og jarðaber
Contact us for a private chef experience.
We offer clear, transparent pricing and tailored menus — designed for executive teams, retreats, and private corporate gatherings.
Frábær kjör á stórum hópum í fordrykk á fröken selfoss áður en kvöldverðar þjónustan byrjar.
Byrjið kvöldið á réttan hátt með barþjónustu frá okkur.
Við getum tekið á móti allt að 100 manna hóp á Fröken Selfoss í fordrykk fyrir viðburðinn eða komið með ferðabarinn okkar hvar sem þú ert!
Fröken Selfoss er frábær staður til að koma saman, slaka á og koma kvöldinu vel af stað.
Panta veislu
- Fylltu út formið með grunn upplýsingum svo við getum leyst úr þínu verkefni hratt og örugglega.
- Við reynum að svara öllum fyrirspurnum innan 48 tíma.
- Ef málið er áreiðandi heyrðu þá í okkur í síma 451-3320 til að vekja athylgi á því.
- Fyrirspurnir eru ekki bindandi.



